Landnámssýningin

Reykjavik 871

Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.

Landnámssýningin Reykjavík 871±2 er staðsett í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 16. Sjá kort.

Margmiðlunartækni er notuð til að útskýra byggingarlag húsa á víkingaöld. Einnig er hægt að skyggnast inn í skálann með hjálp tölvutækni og ímynda sér hvernig lífi heimilsfólksins var háttað.

Á sýningunni er reynt að gefa hugmynd um umhverfi Reykjavíkur eins og það var við landnám. Einnig eru sýndir munir sem fundist hafa við fornleifauppgröft í miðbæ Reykjavíkur. Hér má sjá upplýsingar um muni sem eru á sýningunni.

Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólahópa á öllum skólastigum. Einnig er hægt að panta leiðsagnir fyrir hópa eftir samkomulagi. Panta þarf leiðsagnir með fyrirvara. Panta þarf leiðsögn fyrir hópa í síma 411 6370 eða á tölvupóstfangið: landnam(hjá)reykjavik.is

 




Senda Prenta Senda á Facebook

Reykjavik 1786

Viðburðir


kjarval

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi | 22.04.2013

Sýning Listasafns Reykjavíkur Kjarval og Gullmávurinn verður á Árbæjarsafni miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00.


hadegisganga_2013

Hádegisganga um Kvosina | 16.04.2013

Næstkomandi föstudag 19. apríl kl 12:00-13:00, bjóða Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur upp á hádegisgöngu um Kvosina undir leiðsögn Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara og Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur borgarminjavarðar.


Kjothus

Námskeið fyrir húsamiði: Viðhald og viðgerðir gamalla húsa | 06.03.2013

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan og innan húss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð.

Skoða alla viðburði